
Kjarakönnun RSÍ farin í loftið
Kjarakönnun Rafiðnaðarsambands Íslands er farin í gang. Gallup sér um framkvæmd könnunarinnar og félagsfólk er hvatt til að taka þátt. Allir sem svara fá fimm orlofspunkta og eiga jafnframt möguleika á útdráttarverðlaunum.
Könnunin gefur mikilvæga mynd af launum og starfskjörum félagsfólks eftir greinum. Niðurstöðurnar hjálpa til við að greina stöðuna og meta hvar þörf er á úrbótum.
RSÍ hvetur félagsfólk til að gefa sér tíma til að svara könnuninni og leggja þannig sitt af mörkum til öflugrar kjarabaráttu.
