Rífandi stemmning og vegleg dagskrá á fjölskylduhátíðinni

Categories: 2026, Fréttir3 min readPublished On: 23. June 2026Last Updated: 24. June 2026

Fjölskylduhátíð RSÍ fór fram á Skógarnesi dagana 19.–21. júní þar sem félagsfólk og fjölskyldur þess nutu samveru, afþreyingar og fjölbreyttrar dagskrár í frábæru sumarveðri. Að þessu sinni átti FÍR (Félag íslenskra rafvirkja) heiðurinn af helstu dagskrárliðum en félagið fagnar á árinu 100 ára afmæli sínu. Hátíðin var því sérstaklega vegleg að þessu sinni.

Við komu á svæðið fengu öll börn gjöf frá félaginu, meðal annars bolta, spil, frisbídisk og bangsa sem gerður var eftir lukkudýrinu Fána. Gjafirnar vöktu mikla lukku hjá yngstu gestunum og settu strax tóninn fyrir hátíðina.

Dagskráin hófst á föstudagskvöldi með spurningakeppni í boði RSÍ UNG þar sem vegleg verðlaun voru í boði. Plötusnúðurinn DJ Atli Viðar hélt síðan uppi stemmingunni til klukkan 23.

Snemma á laugardag hófst fjörið með boltaleik þar sem börnin leituðu að boltum sem faldir höfðu verið víðs vegar um svæðið. Að launum fengu börnin bíómiða.

Á laugardeginum í blíðskapar veðri hófst bíóleikurinn, krakkarnir leituðu að boltum sem var búið að fela víðsvegar um svæðið og fengu bíómiða að launum hjá karakterum úr Leikhóp Lottu.  kl 11:00 var síðan leiksýningin LITALAND með  Leikhópnum Lottu. Það voru glöð börn sem sátu í grasinu í góða veðrinu með popp í hendi og nutu leiksýningarinnar.  Eftir sýningu fengu börnin að fara í myndatöku með leikhópnum. Samkvæmt venju var svo boðið uppá grillaðar pylsur og djús í hádeginu.

Lukkudýrið Fáni mætti á staðinn klukkan 13 og aðstoðaði víðavangshlaupara að hita sig upp og veitti svo keppendum verðlaunapeninga að hlaupi loknu. Það vakti mikla kátínu á meðal hátíðargesta, sér í lagi hjá yngri kynslóðinni. Yngsti keppandinn var nýorðin tveggja ára.

Allir sem luku hlaupinu fengu verðlaunapening fyrir þátttökuna.

Síðdegis var keppt í ýmsum greinum, meðal annars körfubolta, fótbolta og frisbígolfi, þar sem alvöru dómarar sáu til þess að allt færi vel fram. Aðeins eitt gult spjald fór á loft en það hlaut tímavörður. Góður keppnisandi var því að venju í fyrirrúmi. Að keppnum loknum bauð FÍR upp á afmælisköku í tilefni aldarafmælis félagsins og síðar um daginn mætti ísbíllinn á svæðið og bauð gestum upp á ís.

Um kvöldið hélt Leikhópurinn Lotta svo líflegt krakkadiskó þar sem börnin dönsuðu, sungu með og skemmtu sér konunglega. Stemningin var frábær og leikararnir náðu einstaklega vel til barnanna. Fáni mætti á diskótekið og afhenti verðlaun fyrir keppnir dagsins með aðstoð leikhópsins.

Laugardagskvöldið náði síðan hápunkti með stórkostlegum afmælistónleikum þar sem fram komu Matti Matt og hljómsveit hans, Stefán Hilmarsson, Stefanía Svavarsdóttir, Elísabet Ormslev og Jónas Sigurðsson ásamt Ritvélum framtíðarinnar. Tónleikarnir voru einstaklega vel heppnaðir og á þeim skapaðist rífandi stemmning. Gestir hátíðarinnar dönsuðu og nutu tónlistarinnar langt fram á kvöld. Að tónleikum loknum var boðið upp á miðnæturpylsur sem runnu ljúflega niður eftir viðburðaríkan dag.

RSÍ færir félagsfólki innilegar þakkir fyrir samveruna í Skógarnesi. Sambandið þakkar fjölmörgum sjálboðaliðum einnig fyrir þeirra dýrmæta framlag við að gera hátíðina að veruleika.

Loks færir sambandið FÍR hamingjuóskir með aldarafmælið og þakkar félaginu fyrir glæsilega dagskrá á Skógarnesi um helgina.