Daníel Heiðar og Salbjörg unnu golfmót Fagfélaganna

Categories: 2026, Fréttir1 min readPublished On: 16. June 2026Last Updated: 16. June 2026

Góð þátttaka var í Golfmóti Fagfélaganna sem fór fram í blíðskaparveðri á golfvellinum í Öndverðarnesi föstudaginn 12. júní sl. Keppt var um verðlaun bæði karla- og kvennaflokki.

Svo fór svo að Daníel Heiðar Líndal Jónsson (RSÍ) og Salbjörg Bjarnadóttir báru sigur úr býtum en nánari upplýsingar um úrslit má sjá í Golfboxinu.

Gefnar voru veglegar teiggjafir í upphafi móts og boðið upp á glæsilegan málsverð að móti loknu auk þess sem rútuferð stóð til boða til og frá mótsstað.

Almenn ánægja var með mótið enda aðstæður með besta móti og ættu kylfingar að setja það í golfdagatalið fyrir næsta sumar.