Vinnustaðaeftirlit á Akureyri: Flestir reyndust án réttinda

Categories: 2026, Fréttir2 min readPublished On: 26. May 2026Last Updated: 26. May 2026

Dagana 11. og 12. maí fór fram umfangsmikið vinnustaðaeftirlit á Akureyri á vegum Fagfélaganna, Eflingar og FIT. Eftirlitið var skipulagt í samvinnu við Einingu-Iðju. Eftirlitsfulltrúar heimsóttu alls 23 vinnustaði og ræddu við tæplega 120 starfsmenn hjá rúmlega 50 fyrirtækjum.

Markmið eftirlitsins var að kortleggja stöðu byggingariðnaðar og tengdra greina á Norðurlandi, upplýsa starfsfólk um réttindi og skyldur þess og kanna menntun og fagþekkingu iðnaðarstarfsmanna á svæðinu.

Sérstök áhersla var lögð á byggingasvæði, meðal annars gagnaversframkvæmdir, þar sem staða starfsfólks starfsmannaleigna og útsendra starfsmanna var skoðuð sérstaklega. Þá var jafnframt unnið að því að kortleggja kveðjur undirverktaka á framkvæmdasvæðunum.

Kortlagning menntunar og fagréttinda leiddi í ljós að af þeim starfsmönnum sem rætt var við á iðnaðar- og byggingasvæðum voru 11 meistarar, 11 sveinar og fimm nemar eða starfsnemar. Stærsti hópurinn, alls 46 starfsmenn, var hins vegar án viðurkenndrar fagmenntunar eða íslenskra fagréttinda.

Að mati eftirlitsaðila er það áhyggjuefni og bendir til þess að verulegur fjöldi einstaklinga starfi við iðnaðarstörf á Norðurlandi án formlegrar fagmenntunar, ekki síst meðal erlends starfsfólks sem starfar í gegnum starfsmannaleigur eða sem útsendir starfsmenn í tímabundnum verkefnum.

Í heimsóknunum var einnig lögð áhersla á upplýsingagjöf um réttindi starfsfólks. Meðal annars var bent á að launahækkun samkvæmt kjarasamningum nam 3,5 prósentum frá áramótum, að lágmarki 23.750 krónum á mánuði. Þá voru starfsmenn minntir á orlofsuppbótina sem greiðist eigi síðar en 1. júní ár hvert og nemur 62 þúsund krónum á orlofsárinu 2026 miðað við fullt starf.

Niðurstöður eftirlitsins verða nýttar til að bæta eftirfylgni og þjónustu við starfsfólk á svæðinu og styrkja réttindagæslu félagsmanna á Norðurlandi.