
Ályktun sambandsstjórnarfundar
Sambandsstjórnarfundur Rafiðnaðarsambands Íslands, sem haldinn var í Stykkishólmi dagana 7. og 8. maí 2026, skorar á stjórnvöld að bregðast við þeirri stöðu sem blasir við launafólki. Grípa þarf til sértækra aðgerða til að vinna á verðbólgu og háum vöxtum.
Sambandsstjórn RSÍ fagnar því að stjórnvöld hafi lækkað virðisaukaskatt á eldsneyti til að bregðast við hækkandi heimsmarkaðsverði sem bitnar á heimilum landsins.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er hvött til að endurvekja átakið „Allir vinna“ sem gagnast öllum. Þá er ríkisstjórnin einnig hvött til að stuðla að uppbyggingu húsnæðis á viðráðanlegu verði – með viðráðanlegum vöxtum – þannig að ungt fólk og tekjulágt komist í öruggt húsnæði. Tryggja þarf að þau heimili sem verðbólgan bitnar mest á fái sértækan stuðning.
Jafnframt hvetur fundurinn stjórnvöld til að ýta undir aukinn jöfnuð í samfélaginu. Það má meðal annars gera með því að auka skattheimtu þar sem fjármagn er nægt, til dæmis með hækkun á fjármagnstekjuskatti á stóreignafólk. Horfa þarf einnig til fyrirtækja og banka sem skila milljarðahagnaði á meðan almenningur líður fyrir og býr á sama tíma við háa vexti og verðbólgu.
Sambandsstjórn RSÍ
