
Vel sótt hádegisfræðsla fyrir trúnaðarmenn
Þann 15. apríl stóðu Fagfélögin fyrir hádegisfræðslu fyrir trúnaðarmenn sína. Að þessu sinni fjallaði Ágúst Arnórsson, hagfræðingur ASÍ, um verðbólgu; hvað hún er og hvaða áhrif hún hefur á daglegt líf fólks.
Virkilega ánægjulegt var að sjá hversu margir mættu á fundinn. Góð mæting og virk þátttaka sýnir vel hve mikilvægt er að skapa trúnaðarmönnum vettvang til að fræðast, skiptast á skoðunum og efla tengsl sín á milli.
Mánaðarleg hádegisfræðsla er frábær leið til að styrkja hlutverk trúnaðarmanna, auka þekkingu þeirra og skapa tækifæri til samtals og samvinnu við aðra sem starfa í tengslum við stéttarfélögin.
Ef þú hefur áhuga á að verða trúnaðarmaður á þínum vinnustað, endilega hafðu samband við félagið á trunadarmenn@fagfelogin.is
