
Framboð til trúnaðarstarfa fyrir Skerpu
Aðalfundur Skerpu verður haldinn 27. apríl 2026.
- Auglýst er eftir framboðum í trúnaðarstörf skv. 40. grein laga Skerpu.
- Kosið verður um varaformann, 4 í stjórn, 2 í varastjórn og 5 í trúnaðarráð.
- Framboðsfrestur rennur út á hádegi 15. mars.
- Framboðum skal skilað til kjörstjórnar Skerpu innan þess tíma, á skrifstofu Húss fagfélaganna á Stórhöfða 29-31 eða í tölvupósti á netfangið rafis@rafis.is
- Framboð skulu kynnt með fundarboði aðalfundar, eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
