
Tilkynning vegna framferðis Alcoa
Fréttatilkynning
Afl Starfsgreinafélag og Rafiðnaðarsamband Íslands hafa eftir helgina fengið ábendingar um að stjórnendur Alcoa hafi rætt við óbreytta starfsmenn um kjaradeilu félaganna við fyrirtækið. Þá hafa jafnframt borist vísbendingar um að félagsfólki okkar hafi verið beitt óeðlilegum þrýstingi á vinnustaðnum.
Við krefjumst þess að þessum afskiptum verði hætt strax og að stjórnendur einbeiti sér frekar að því að koma að samningsborðinu með tilboð sem felur í sér sömu launahækkanir og tryggðar hafa verið í öðrum stóriðjum á Íslandi á næstu árum.
Það er óásættanlegt í kjaradeilu sem þessari að venjulegt félagsfólk upplifi þrýsting eða afskipti sem geta haft áhrif á afstöðu þess í deilunni.
