Baráttudagur verkalýðsins verður venju samkvæmt haldinn hátíðlegur þann 1. maí, fimmtudaginn í næstu viku. Glæsileg dagskrá verður á tíu stöðum á landinu. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er: „Við sköpum verðmætin“.

Að dagskrá lokinni munu Fagfélögin bjóða félagsfólki og fjölskyldum þeirra upp á kaffi á Stórhöfða 29-31. Kaffið hefst klukkan 14:00.

Dagskráin í Reykjavík verður sem hér segir:

13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti.

13:30 Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.

14:00 Útifundur hefst á Ingólfstorgi.

Fundarstýra er Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir sviðshöfundur og listakona og Margrét Pétursdóttir mun táknmálstúlka. Dagskráin verður jafnframt textatúlkuð á ensku.

Ræðu flytja Karla Esperanza Barralaga Ocón starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu og Jóhanna Bárðardóttir rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ.

Mammaðín og Una Torfa munu taka lagið og í lok fundarins verður samsöngur.

Hér má sjá dagskrá á öðrum stöðum á landinu