Skrifstofa Fagfélaganna – VM, RSÍ og MATVÍS – verður lokuð frá 21. júlí til 1. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Skrifstofan verður opnuð aftur þriðjudaginn 5. ágúst kl. 8:00.
Kjaramál: Í neyðartilvikum er hægt að senda tölvupóst til kjarasvid@fagfelogin.is sé um kjaramál að ræða.
Orlofshús: Ef um er að ræða brýna aðstoð vegna orlofshúsa má senda tölvupóst til orlofsmal@fagfelogin.is. Varðandi almennar fyrirspurnir vekjum við athygli á þeim upplýsingum sem fram koma á heimasíðum félaganna og í leigusamningi þar sem m.a. má finna símanúmer umsjónarmanns.
Styrkir og sjúkradagpeningar: Umsóknir um styrki og sjúkradagpeninga þurfa að berast í síðasta lagi 11. júlí. Styrkir verða greiddir út föstudaginn 18. júlí og sjúkradagpeningar greiðast út fimmtudaginn 31. júlí. Umsóknir sem berast 12. til 18. júlí greiðast út mánudaginn 18. ágúst.