

Spennugolf í Miðdal 20. júní – skráning
20. June @ 11:00 - 17:00
RSÍ stendur fyrir golfmóti hjá Golfklúbbnum Dalbúa í Miðdal, föstudaginn 20. júní – við upphaf fjölskylduhátíðarinnar á Skógarnesi.
Leiknar verða 18 holur; höggleikur og punktakeppni karla og kvenna. Hámarksforgjöf fyrir konur er 30 en 24 fyrir karla.
Mæting er klukkan 11:00 en ræst verður út klukkan 12:00.
Hamborgarar verða í boði eftir mót á tjaldsvæðinu í Miðdal. Verðlaunafhending verður að mat loknum.
Athugið að veglegar teiggjafir verða veittar.
Mikilvægt er að skrá sig á mótið. Hægt er að skrá sig til og með 18. júní.