

Fjölskylduhátíð RSÍ 20.-22. júní
20. June - 22. June
Árleg fjölskylduhátíð RSÍ verður haldin á Skógarnesi 20.-22. júní næstkomandi. Að venju verður þar fjölbreytt dagskrá í boði fyrir alla aldurshópa. Dagskrá hefst kl. 15 á föstudeginum. Leiktæki verða á svæðinu, leikhópurinn Lotta setur upp leiksýningu og keppt verður í hinum ýmsu greinum, svo sem veiði, knattspyrnu og víðavangshlaupi. Dagskrá lýkur á laugardagskvöldið með tónleikum.
Athugið að ekki er hægt að bóka tjaldstæði áður en hátíðin hefst en frítt er á hátíðina. Fyrirkomulagið fyrst koma – fyrst fá, verður við lýði eins og undanfarin ár.
Sjáumst öll á Skógarnesi!