Loading Events
Ferð eldri félaga verður farin mánudaginn 26. ágúst  og þriðjudaginn 27.  ágúst. Eftir vel heppnaða ferð haustið 2023 var ákveðið að halda sama fyrirkomulagi, fara að hausti og hafa val um tvo daga.
Lagt verður af stað frá bílastæðunum við Laugardalsvöll kl. 13:00, sömu bílastæði og í fyrra. Suðurnes eru áfangastaður þetta árið og kaffihlaðborðið verður á sínum stað.
Skráning hefst fimmtudaginn 8. ágúst og lýkur föstudaginn 16. ágúst. Hægt er að skrá sig með því að hringja á skrifstofuna í síma 5400100 eða senda tölvupóst á rsi@rafis.is. Makar eru að sjálfsögðu velkomnir en mikilvægt að skrá mætingu hans samhliða skráningu félagsmanns. Einnig er nauðsynlegt að skrá gsm símanúmer.
Þessar ferðir hafa verið vel sóttar síðustu ár og því mikilvægt að skrá sig tímanlega til að komast að en hámarksfjöldi í hvora ferð er 110 manns.