Loading Events
Opnun tjaldstæða
Tjaldsvæði RSÍ á Skógarnesi verður opnað fimmtudaginn 12. maí en aðeins B svæðið. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvenær önnur svæði verða opnuð en vissulega spilar veður og gróður þar stórt hlutverk. En hvetjum alla til að fylgjast með upplýsingum sem settar verða á heimasíðu og samfélagsmiðla þegar nær dregur.
Opnað verður fyrir bókanir á B svæði mánudaginn 9. maí kl 9:00
Tjaldsvæði í Miðdal verður ekki opnað fyrr en um mánaðarmótin maí/júní. Miklar framkvæmdir hafa verið á svæðinu en unnið hefur verið að endurbótum á þjónustumiðstöðinni.
Greiðslufyrirkomulag á tjaldsvæðunum verður með sama hætti og verið hefur síðustu tvö sumur þar sem greiða þarf fyrirfram fyrir tjaldstæði á orlofsvef RSÍ. Eingöngu verður heimilt að koma sér fyrir á því svæði sem bókað er á orlofsvef.