Skógarnes við Apavatn

Orlofssvæði RSÍ við Apavatn skammt frá Laugarvatni er glæsilegt orlofssvæði í eigu RSÍ. Mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarna áratugi og er það vinsælt meðal RSÍ félaga. Svæðið samanstendur af skjólgóðu tjaldsvæði sem skipt er upp í 5 hluta og 15 orlofshúsum í þremur stærðum,  270fm, 90fm og 55fm. Aðstaða er öll til fyrirmyndar og búið öllum þeim þægindum sem góð tjaldsvæði prýða. Útivistar- og leiksvæði auk golfvallar er á svæðinu, leyfð er veiði í vatninu frá bökkum þess og allt að 60 faðma frá landi og bátar eru í boði yfir hásumarið.

Svæðið er eingöngu ætlað félögum í RSÍ og gestum þeirra, bæði tjaldsvæði og orlofshús.

Á svæðinu er glæsilegt og skjólgott tjaldsvæði búið öllum þeim þægindum sem hægt er að bjóða á tjaldsvæði s.s.

  • Snyrtingar.
  • Sturtur.
  • Gasgrill.
  • Útivaskar undir þaki.
  • Þvottaaðstaða.
  • Heitt og kalt vatn.
  • Leiktæki, körfu, fótboltavellir.
  • Púttvöllur og 9 holu par 3 golfvöllur.
  • 100fm blöðru-trambólin.
  • Veiði er leyfð í vatninu frá bökkum þess og allt að 60 faðma frá landi.
  • Orlofshúsin á svæðinu eru 15 talsins og í þremur stærðum,  270fm, 90fm og 55fm.
  • Öll húsin eru glæsileg með svefnplássi frá 5 til 10 manns.
  • Í „Stóra húsinu” eru 6 svefnherbergi með svefnplássi  fyrir 28 manns í rúmum.

Tjaldsvæðið er opið frá hvítasunnu og út september ár hvert, fer þó eftir veðri og frosti í jörðu á vorin

Úrdráttur úr reglum tjaldsvæðisins á Skógarnesi:

  • Félagsmenn þurfa að framvísa greiðslukvittun við komu á svæðið. Umsjónarmaður er með aðgang að félagakerfi til að fletta upp félagsmönnum út frá kennitölu.
  • Hver félagsmaður má hafa gesti með sér á tjaldsvæðinu, þrjár einingar fyrir utan sína eigin, samtals 4 einingar með einingu félagsmanns (húsbílar, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagn eða tjöld eru einingar).
  • Félagsmaður þarf að vera mættur á svæðið þegar gestur hans mætir á svæðið.
  • Félagsmaður ber ábyrgð á gestum sínum, þurfi umsjónarmaður að hafa afskipti af gestum félagsmanns þá er það með aðstoð og á ábyrgð félagsmanns.
  • Félagsmönnum er ekki heimilt að lána öðrum félagsskírteini sín.
  • Tjaldsvæði A er lokað fyrir umferð bíla að því undanskyldu að heimilt er að koma tjöldum á sinn stað og tæma búnað úr bílum. Þetta er gert til þess að tryggja öryggi barna á svæðinu.
  • Lágmarka skal umferð ökutækja um tjaldsvæði B, C og D. Nýta skal bílastæði í nágrenni tjaldsvæðanna og ávallt skal huga að öryggi barna þegar ekið er um svæðið.
  • Hámarkshraði á svæðinu er 10 km/klst.
  • Orlofssvæðið er fjölskyldusvæði og skal ró vera komin á á svæðinu kl. 00:00.
  • Notkun bassaboxa er óheimil á svæðinu.
  • Gæludýr eru velkomin, skilyrði að þau séu alltaf í taumi. Lausaganga gæludýra er stranglega bönnuð.
  • Gæludýr skulu ávallt vera í taum af hæfilegri lengd svo dýr nái ekki til annarra gesta.
  • Öll umferð mótorhjóla og fjórhjóla um svæðið er bönnuð.
  • Notkun dróna er óheimil á svæðinu
  • Öll meðferð opins elds er bönnuð.
  • Öll meðferð skotvopna er stranglega bönnuð.
  • Félagsmönnum og gestum þeirra ber að kynna sér reglur þessar sem og þær reglur sem eru á skiltum á svæðinu.
  • Við alvarleg brot getur félagsmaður verið útilokaður frá nýtingu orlofshúsa og tjaldsvæðis RSÍ í allt að 3 ár.
  • Umsjónarmaður er staðsettur á svæðinu og hægt er að ná til hans í síma 862-5220.

Reglur tjaldsvæðisins í heild sinni!

Svör:

Þúfa

Æði margir auðlegð af mér reyttu.

Seppunum ég þjóna þótti.

Þúfnabani á mig sótti.

Fé-þúfa

Hunda-þúfa

Tún-þúfa

Bjór

Mér er oft úr hálsi í hálsa helt, því miður.

Að elta mig var áður siður.

Í ólar var ég ristur niður.

Flösku-bjór

Skinn-bjór

Leður/sel-bjór

Borð

Á mig er raðað mönnum hér af mörgum stéttum.

Salt ég verð af sjávarskvettum.

Svigna undan dýrum réttum.

Tafl-borð

Fjöru-borð

Matar-borð

Gámur

Með hina og aðra hluti milli hafna fer ég.

Matinn ört að munni ber ég.

Meðal jólasveina er ég.

Flutninga-gámur

Matar-gámur

Skyr-gámur

Stöng

Ég á merki allra þjóða uppi að bera.

Stökkmenn oft ég upp get hafið.

Ég er býli úr rústum grafið.

Fána-stöng

Stangarstökks-stöng

Eyðibýlið-stöng

Teinn

Um mig snældur öðru hvoru eru að snúast.

Ég varð góða Baldri að bana.

Úr brúnni skamma ég hásetana.

Snældu-teinn

Mistil-teinn

Kaf-teinn

Hryggur

Hér og hvar um hálendið er hægt að sjá mig.

Í Staðarsveit þú um mig ekur.

Á mér í sauðarbaki tekur.

Fjalls-hryggur

Öldu-hryggur

Sauðar(spjald)-hryggur

Tröð

Mig hefur nagað fjöldi fjár og fótum troðið.

Ég var leið frá hliði að hlaði.

Hjá þér veld ég svitabaði.

Fjár (ör)-tröð

Heimreiðar-tröð

Mar-tröð

Grind

Vatnsföturnar voru mér til vinstri og hægri.

Í heimreiðum ég hlýt að vera.

Hold þitt verð ég allt að bera.

Vatnsburðar-grind

Hlið-grind

Beina-grind

Bjarg

Ég er veiðiaðferð, sem ótta vekur.

Að frændum dreg ég forða og vinum.

Frægur bær í Miðfirðinum.

Bjarg-sig

Bjarg-vættur

Bærinn – Bjarg

Verðskrá gildir jafnt fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.