Hlaupanámskeið RSÍ
27. May @ 20:00 - 21:30
Á dögunum var stofnað til Hreyfibandalags RSÍ og er eitt af fyrstu verkefnum þess að bjóða upp á hlaupanámskeið fyrir áhugasöm innan raða RSÍ fólks, því stefnt er á þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst!
Er ekki tilvalið að nota tækifærið og koma sér loksins af stað??
Námskeiðið fer fram í húsakynnum RSÍ á Stórhöfða 31 og verður einnig í boði sem fjarnámskeið.
Dagsetning: 27. maí 2024 kl. 20:00 – 21:30
Skráning nauðsynleg! Engin þátttökugjöld! Skannaðu QR kóðann til að finna Facebook hópinn!
Á námskeiðinu verður stiklað á stóru um hlaupaþjálfun. Fjallað verður almennt um líkamsrækt og hlaup og hvaða leiðir er skynsamlegar og heppilegar þegar byrja á að hlaupa. Síðan verður farið í grundvallaratriði hlaupaþjálfunar, æfingahugtök sem notuð eru í hlaupaþjálfun kynnt ásamt því að sýna dæmi um æfingaáætlanir og hvernig þær eru uppbyggðar.
Síðan verður fjallað um helstu ástæður meiðsla og helstu forvarnir. Á námskeiðinu verða einnig kynntar helstu teygjur og styrktaræfingar fyrir hlaupara og kennt hvernig velja á hlaupaskó sem hentar hlaupalagi viðkomandi hlaupara. Að lokum skoðum við sameiginlegt markmið í Reykjavíkurmaraþoni og farið yfir 5 hollráð fyrir hlaupara.
Efnistök á námskeiðinu:
- Af hverju hlaup ?
- Almennt um líkamsrækt og hlaup
- Hvernig á að byrja að hlaupa ?
- Þjálfun/Æfingahugtök/Æfingaáætlanir
- Meiðsli og forvarnir meiðsla
- Teygjur/Styrktaræfingar
- Útbúnaður
- 5 hollráð fyrir byrjendur
Leiðbeinandi
Umsjónarmaður hlaup.is, Torfi H. Leifsson er leiðbeinandi á námskeiðinu. Torfi hefur stundað hlaup í yfir 35 ár, verið með námskeið og séð um þjálfun í 15 ár og séð um hlaup.is frá 1996.