Loading Events

Sameiginleg námskeið Fagfélaganna að Stórhöfða 29-31.

Námskeiðsdagar 31. mars og 1. apríl

Trúnaðarmannanámskeiðið telst til 1. hluta.

Þeir sem eru trúnaðarmenn á sínum vinnustað eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband í síma 540-0100 eða senda okkur tölvupóst á mottakan@fagfelogin.is

  • Nemendur þurfa að skrá sig inn á innri vef Félagsmálaskólans: www.felagsmalaskoli.is 
  • Stofna þarf aðgang með íslykli, rafrænum skilríkjum eða lykilorði.

Kennarar verða Sigurlaug Gröndal, Guðrún Edda Baldursdóttir og starfsmenn fagfélaganna. Elmar Hallgrímsson framkvæmdastjóri Fagfélganna mun kynna starfsemi Fagfélaganna á námskeiðinu. Nemendur fá í hendur námsgögn sem notuð eru fyrir hvern námsþátt. Á innri vef fara fram samskipti nemenda og leiðbeinenda. Athugið að skráningu lýkur viku fyrir fyrsta námskeiðsdag.

Nemendur munu geta fylgst með námsframvindu sinni inni á innri vef Félagsmálaskólans. Þar munu þeir einnig fylla út námsmat og sækja viðurkenningarskjölin að námskeiði loknu.

Munið að nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa meðferðis fartölvu, ipad eða símann sinn á námskeiðunum, þar sem námsefni verður meira eða minna rafrænt.

Fagfélögin greiða fyrir þátttöku sinna félagsmanna og boðið er uppá ókeypis mat og kaffi á meðan námskeiðin fara fram. Félagsmenn eiga að halda launum frá sínum launagreiðanda á meðan námskeið varir.