Samkeppni í bíórekstri. Nýja Bíó.
Fyrirtækið Nýja Bíó h/f var stofnað í Reykjavík 12. apríl árið 1912. Stofnendur
þess voru bræðurnir Sturla og Friðrik Jónssynir, Sveinn Björnsson, Pétur Þ. J.
Gunnarsson, Ólafur Johnsson, Carl Sæmundsson, og Pétur Brynjólfsson.
Þetta voru mætir menn í bæjarlífinu, Carl var þekktur stórkaupmaður, eins og
Ólafur, sem viðriðinn hafði verið fyrstu kvikmyndasýningarnar hér á landi,
Sveinn var yfirdómslögmaður og átti síðar eftir að verða fyrsti forseti íslenska
lýðveldisins og ljósmyndarinn Pétur bar að miklu leyti ábyrgð á því að
Bíópetersen skolaði upp að íslenskum ströndum, svo sem áður hefur verið vikið
að. Hann tók að sér framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
Fyrsta kvikmyndasýningin á vegum Nýja Bíós fór fram í austursal Hótels Íslands
þann 4. júlí 1912. Salinn hafði bíóið tekið á leigu fyrir kvikmyndasýningar og
gert á honum ýmiskonar breytingar, t.d. hækkað upp sætaraðir aftast og komið
fyrir lyftanlegum sætum. Í þessu húsnæði starfaði hið nýja bíó fyrstu sjö árin,
eða þar til leigusamningi þess var sagt upp.
Pétur gegndi stöðu framkvæmdastjóra kvikmyndahússins aðeins um nokkurra mánaða
skeið, eða til áramóta 1913. Var þá leitað enn í smiðju Dana, og tók þarlendur
maður við framkvæmdastjórn fyrirtækisins, Bang að nafni. Stjórnaði hann bíóinu
til ársins 1914 að tók Guðmundur Jensson tók við, en frá og með árinu 1920
stjórnaði hann bíóinu ásamt Bjarna Jónssyni frá Galtafelli.
Árið 1920 var stofnað nýtt hlutafélag um rekstur kvikmyndahússins, en í stjórn
þess voru Bjarni Jónsson, Guðmundur Jensson og Lárus Fjeldsted,
hæstaréttarlögmaður. Allir sátu þeir í stjórn fyrirtækisins til dauðadags, og
Guðmundur stjórnaði bíóinu lengst af, eða þar til sonur hans, Sigurður tók við
rekstrinum.
Í húsnæðishallærinu var afráðið að byggja nýtt hús undir starfsemina. Var hafist
handa við byggingu þess í maí 1919, en því var valinn staður í miðbæ Reykjavíkur
- við Austurstræti. Finnur Thorlacius var yfirsmiður og gerði hann jafnframt
uppdrætti.
Líkt og var með byggingu Gamla bíós nokkrum árum fyrr, var ekkert til sparað í
byggingu Nýja bíós. Gestir gripu andann á lofti er það var opnað með viðhöfn 19.
júlí 1920. Var enda um stærsta samkomuhús landsins að ræða, með sæti fyrir 486
manns, og kostnaður við bygginguna var talinn nema á fjórða hundrað þúsund
krónum.
Sýningarsalurinn sjálfur var skreyttur fjölda smárra rafljósa, rafljósakerum og
stórri rafljósakrónu. Rafstöð var í kjallaranum, en einnig var sett upp
miðstöðvarhitun í miðjunni, en það þótti þá mikið nýmæli. Stólarnir voru með
fjaðursettum, en engir bekkir voru í húsinu. Sviðið eða senan var þannig úr
garði gerð að koma mátti fyrir söngpalli fyrir allt að fjörtíu manns fyrir
framan sjálft sýningartjaldið, enda var húsið byggt með ýmis konar
menningarstarfsemi í huga. Á loftsvölum voru tvær hliðarstúkur og lausir stólar
handa átta manns í hvorri fyrir sig.
Aðstæður til sýningar kvikmynda voru nú gjörbreyttar frá því sem áður var. Var
af þeim sökum afráðið að vanda meira til sjálfra kvikmyndasýninganna.
Hljófærasláttur var aukinn og sáu tveir menn um sláttinn að jafnaði hvert kvöld,
en fyrir kom að fleiri hljóðfæraleikarar kæmu að sýningu kvikmynda. Þannig lék
strengjakvartett undir sýningum á kvikmynd Guðmundar Kamban, Höddu Pöddu.
Árið 1945 voru gerðar miklar endurbætur á húsnæði Nýja Bíós og stóðu framkvæmdir
yfir í tvö ár. Var þá m.a. komið fyrir spegilrúðu í innra andyri, sem Kurt Zier,
kennari við Handíðaskólann, teiknaði. Auk þess var komið fyrir sandblásinni rúðu
yfir stigapalli á svalir, en hana teiknaði Halldór Pétursson listmálari.
Um 1980 var enn ráðist í endurbætur á húsinu og ytra andyri stækkað nokkuð og
hljóðkerfi allt endurbætt. Að sama skapi voru lítilvægar breytingar gerðar á
húsinu um miðjan níunda áratuginn er Árni Samúelsson, eigandi Bíóhallarinnar í
Mjódd, festi kaup á rekstri Nýja Bíós og breytti nafni þess í Bíóhúsið. Sá
rekstur gekk þó ekki vel og var kvikmyndasýningum í húsinu hætt áður en níundi
áratugurinn var úti. Þótti mörgum sjónarsviptir að kvikmyndahúsinu úr
miðborginni.
Seinustu árin voru ýmsir skemmtistaðir til húsa í Nýja Bíó, t.d. Tunglið, en
húsið skemmdist mjög illa í bruna 1998 og var síðar rifið. Þar stendur nú
nýbygging tískuvöruverslunarinnar TopShop.
|