Alþingi hefur samþykkt tímabundna heimild til útgreiðslu á viðbótarlífeyrissparnaði. Mikilvægt er að sjóðfélagar sem hafa hug á að nýta sér þetta úrræði kynni sér málið vel hjá sínum vörsluaðila.
- Umsóknarfrestur er frá og með apríl 2020 og lýkur 1. janúar 2021.
- Hámarksúttekt fyrir einstakling er 12 milljónir króna.
- Hámarksgreiðsla á mánuði er 800.000 krónu.
- Útgreiðslutímabil er að hámarki 15 mánuðir.
- Tekjuskattur er innheimtur af úttekt.