This event has passed.
Sumarlokun skrifstofu
24/07/2023 - 08/08/2023
Skrifstofur Húss Fagfélaganna, þar með talið skrifstofa RSÍ, verða lokaðar frá 24. júlí – 8. ágúst 2023 vegna sumarleyfa starfsfólks. Skrifstofurnar opna aftur þriðjudaginn 8. ágúst kl 8:00.
Kjaramál: Í neyðartilvikum er hægt að senda tölvupóst á kjaramal@fagfelogin.is sé um kjaramál að ræða.
Orlofshús: Ef um er að ræða brýna aðstoð vegna orlofshúsamála vinsamlegast sendið tölvupóst á adam@rafis.is. Varðandi almennar fyrirspurnir vegna útleigu á orlofshúsum vekjum við athygli á þeim upplýsingum sem fram koma í leigusamningi þar sem m.a. fá finna símanúmer umsjónarmanns.
Styrkir og sjúkradagpeningar:
Umsóknir um styrki og sjúkradagpeninga þurfa að berast í síðasta lagi 11. júlí. Styrkir verða greiddir út þriðjudaginn 18. júlí og sjúkradagpeningar greiðast út mánudaginn 31. júlí. Umsóknir sem berast frá 12.-20. júlí verða greiddar út mánudaginn 14. ágúst.
Veiðikort og útilegukort:
Síðasti dagur til að kaupa veiðikort og útilegukort á skrifstofu fyrir sumarlokun er föstudagurinn 21. júlí. Á meðan á lokun stendur er að sjálfsögðu hægt að kaupa kortin en þá þarf að senda þau í pósti. Vinsamlegast athugið að það ferli getur tekið nokkra daga.