Loading Events

Ágæti iðnmeistari

Þriðjudaginn 18. apríl kl. 17:15 til 17:45 verður kynning á námi til kennsluréttinda fyrir iðnmeistara.

Kynningin verður haldin sem fjarfundur á Zoom, https://us02web.zoom.us/j/3307042054

Til þess að geta haldið í við ört vaxandi þörf iðnmenntaðra einstaklinga innan samfélagsins er mikilvægt að til staðar séu kennarar sem geti kennt þær faggreinar.

Elsa Eiríksdóttir, deildarstjóri faggreinakennslu á menntavísindasviði og dósent við Háskóla Íslands mun kynna námið.

Fyrirkomulag námsins verður kynnt og meðal annars farið yfir þann möguleika á að stunda námið meðfram vinnu.

Á fundinum gefst iðnmeisturum kostur á því að afla sér frekari upplýsinga um námið og  spyrja spurninga.

Hefur þú áhuga á að kenna þína iðngrein? Komdu á fundinn og kynntu þér málið!

hlekkur á Facebook  viðburð

bit.ly/40jGxfZ