Fréttir frá 2021

10 14. 2021

Eru Íslendingar lélegir neytendur? - Morgunverðarfundur verðlagseftirlits ASÍ og Neytendasamtakana um samkeppnis- og neytendamál

Eru islendingar lelegir neytendur banner

 

Verðlagseftirlit ASÍ og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um samkeppnis- og neytendamál sem verður haldið þriðjudaginn 19. október kl. 08:30-10:00 á Grand Hótel, Reykjavík.   

 

Eru Íslendingar lélegir neytendur? Hvaða áhrif hefur skortur á samkeppni, neytendavernd og eftirliti með viðskiptaháttum á atvinnulíf, viðskipti, verðlag og lífskjör? Er eitthvað sem má betur fara í þessum málum hér á landi?

 

Á fundinum verður leitast við að svara þessum spurningum og fleiri. Fjallað verður um hlutverk, stöðu og umhverfi þeirra opinberu stofnanna og félagasamtaka sem fara með samkeppnis- og neytendamál hér á land og áherslur stjórnvalda í því samhengi. Einnig verður fjallað um fyrirkomulag þessara mála í nágrannalöndunum.

 

Á fundinum verða nokkur styttri erindi og pallborð. Í pallborði verða fulltrúar frá Samkeppniseftirlitinu, Neytendasamtökunum, Samtökum verslunar og þjónustu, Neytendasamtökunum og  verkalýðshreyfingunni.

 

Beint streymi verður af fundinum og hann tekinn upp fyrir þau sem komast ekki á staðinn.

 

Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?