|

Aðild að einhverju hinna 10 félaga sem saman mynda Rafiðnaðarsamband Íslands veitir félögum þeirra réttindi af ýmsum toga. Neðar á síðunni er aðeins reifuð nokkur þeirra réttinda sem fylgja aðild en áhugasömum bent á að kynna sér réttindin til hlítar með því að velja sér leiðir, vinstra megin á síðunni. Undir liðnum spurt og svarað eru spurningar sem borist hafa sambandinu frá félagsmönnum og boðið upp á að senda spurningar til sambandsins í sama tilgangi.
Rafiðnaðarsambandið er stolt af öflugum styrktarsjóð sambandsins.
Í styrktarsjóð er m.a. hægt að sækja eftirfarandi:
- Styrki til íþróttaiðkunar
- Laun í veikindum: Falli félagsmenn út af launaskrá vegna langvinnra veikinda eða slysa tryggir sjúkrasjóðurinn þeim 80% af heildarlaunum. Ef fjölskyldur félagsmanna verða fyrir kostnaði vegna veikinda eða slysa sem tryggingar eða vinnuveitandi greiða ekki, eru greiddir út styrkir vegna þessa.
- Styrki, að upphæð kr. 20.000 á ári, til að sækja almenn námskeið. Félagar í FÍS sækja ekki námsstyrk til RSÍ heldur til gjaldkera FÍS. Nánari upplýsingar á skrifstofu RSÍ.
Nánar er hægt að skoða einstaka styrki undir liðnum styrkur hér vinstra megin.
RSÍ á sterkasta verkfallssjóð hér á landi. Tilvist hans skapar félögum sambandsins hærri laun, komi til verkfalla.
|
|