Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

16_thing

Rafiðnaðarsamband Íslands

Rafiðnaðarsamband Íslands er landssamband stéttarfélaga rafiðnaðarmanna. RSÍ var stofnað árið 1970 af 400 félagsmönnum. Í dag er heildarfjöldi félagsmanna um 6.500 sem skiptast í 10 aðildarfélög. Fjölmennastir eru rafvirkjar eða um 1900, þá rafeindavirkjar eða um 1000, símamenn eru um 1000, tæknimenn í rafiðnaði eru um 1000, símsmiðir um 250, nemar í rafiðnum um 400 og sýningarmenn um 30. Sambandið er starfsgreinasamband sem í eru allir launþegar sem starfa í rafiðnaðargeiranum, hvort sem þeir hafa löggilt sveinspróf eða ekki. Allur félagslegur rekstur er í höndum sambandsins ásamt umsjón eigna, sjóða og gerð kjarasamninga. Starfsemi sambandsins felst í að gæta hagsmuna félagsmanna og fjölskyldna þeirra, bæði gagnvart atvinnurekendum og stjórnvöldum.Formaður og jafnframt framkvæmdastjóri RSÍ er Guðmundur Gunnarsson. Dagleg stjórnun er í höndum framkvæmdastjóra í nánu samráði við framkvæmdastjórn. Þar eru auk formanns, Björn Ágúst Sigurjónsson varaform, Haukur Ágústsson gjaldkeri, Helgi Jónsson  ritari, Grétar Guðmundsson meðstj.  Í miðstjórn sitja auk framkvæmdastjórnar 15 menn. Miðstjórn RSÍ er æðsta vald sambandsins milli ársfunda og hittist að jafnaði 10 sinnum á ári.

 

Ímyndar og þjónustukönnun fyrir Rafiðnaðarsambandið í Mars 2010 pdf_button
Upplýsingar um skilagreinar launagreiðanda pdf_button

 

Skráðu þig á póstlistann

Nafn:

Netfang: