Fjölmörg námskeið á dagskrá Rafmenntar

Categories: 2024, Fréttir1 min readPublished On: 13. August 2024Last Updated: 13. August 2024

Dagskrá haustannar hjá Rafmennt er farin að taka á sig mynd. Á heimasíðu Rafmennt má sjá yfirlit yfir næstu námskeið. Hlutverk Rafmenntar er að veita fagaðilum og nemendum í raf- og tæknigreinum tækifæri til að stunda öflugt framhaldsnám og sinna endurmenntun. Rafmennt heldur reglulega endurmenntunarnámskeið og fyrirlestra fyrir fagfólk í raf- og tækniiðnaðinum, sér um kennslu fagnámshluta meistaraskólans, heldur úti rafbók.is netbókasafn rafiðnaðarins og hefur umsjón með raunfærnimati og sveinsprófum.

Hér fyrir neðan má sjá næstu námskeið.